Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 13. febrúar 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hugmyndafræði Klopp ástæða höfnunnar Ceballos
Mynd: Getty Images
Dani Ceballos ákvað að velja Arsenal framyfir Liverpool síðasta sumar. Ástæðan er hugmyndafræði Jurgen Klopp, stjóra Liverpool.

Ceballos segir frá því að hann hafi neitað því að ganga í raðir Liverpool þar sem hann sá sig ekki passa inn í leikstíl liðsins. Ceballos er á láni frá Real Madrid út þessa leiktíð.

„Ég er stoltur að Liverppol sýndi áhuga en ástæðan fyrir því að ég valdi Arsenal er vegna þess að Emery sagði mér að koma."

„Klopp er frábær þjálfari en þú verður að meta hugmyndafræði hvers félags fyrir sig. Þessa stundina hentar minn leikstíll ekki hugmyndafræði Liverpool."

„Þegar þú ert nefndur í sömu andrá og frábærir knattspyrnumenn þá ertu að gera eitthvað rétt,"
sagði Ceballos að lokum.

Sjá einnig:
Ceballos: Vil endurgjalda Arsenal traustið
Athugasemdir
banner
banner
banner