Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2019 22:01
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Liverpool skipti um gír í München
Barcelona rúllaði yfir Lyon
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Liverpool og Barcelona eru komin áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir leiki kvöldsins. Liverpool vann heljarinnar verk á Allianz Arena eftir markalaust jafntefli á Anfield í fyrri umferðinni.

Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn en Liverpool komst yfir eftir vandræðagang í varnarleik Bæjara. Sadio Mane nýtti sér mistökin til að skora í hálfopið mark þar sem Manuel Neuer var kominn langt af línunni.

Gleði gestanna var þó ekki langlíf því heimamenn jöfnuðu fyrir leikhlé. Joel Matip skoraði þá sjálfsmark þegar hann reyndi að koma í veg fyrir að boltinn bærist á Robert Lewandowski fyrir framan markið.

Lærisveinar Jürgen Klopp mættu talsvert grimmari til leiks eftir leikhlé og eignuðu sér hann með öguðum varnarleik og beittum sóknarleik.

Virgil van Dijk kom Liverpool aftur yfir með skallamarki eftir hornspyrnu og innsiglaði Mane sigurinn með skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Mohamed Salah.

Á sama tíma rúllaði Barcelona yfir Lyon á Nývangi eftir markalaust jafntefli þegar liðin mættust í Frakklandi.

Börsungar fóru vel af stað og gjörsamlega stjórnuðu fyrri hálfleiknum. Lionel Messi skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu og tvöfaldaði Philippe Coutinho forystuna fyrir leikhlé.

Gestirnir komu grimmir út í síðari hálfleikinn og minnkuðu muninn en reynsla Börsunga skein í gegn undir lokin.

Lyon spilaði góðan fótbolta en færanýtingin ekki jafn góð og hjá heimamönnum sem skoruðu þrjú mörk úr þremur skotum á rammann eftir leikhlé. Lokatölur því 5-1, Messi skoraði tvö og lagði upp tvö.

FC Bayern 1 - 3 Liverpool
0-1 Sadio Mane
1-1 Joel Matip
1-2 Virgil van Dijk
1-3 Sadio Mane

Barcelona 5 - 1 Lyon
1-0 Lionel Messi ('18, víti)
2-0 Philippe Coutinho ('31)
2-1 Lucas Tousart ('58)
3-1 Lionel Messi ('78)
4-1 Gerard Pique ('81)
5-1 Ousmane Dembele ('86)
Athugasemdir
banner
banner