Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. apríl 2019 14:00
Arnar Daði Arnarsson
Draumaliðsdeildin - Arnór Ingvi velur sitt lið
Draumalið Arnórs Ingva.
Draumalið Arnórs Ingva.
Mynd: Draumaliðsdeildin
Arnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi Traustason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Draumaliðsdeild Eyjabita opnaði í síðustu viku og tæplega 1000 lið eru nú þegar skráð til leiks.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Arnór Ingvi Traustason leikmaður Malmö og íslenska landsliðsins er búinn að stilla upp sínu liði fyrir tímabilið.

Arnór Ingvi er með tvo liðsfélaga sína úr íslenska landsliðinu í liðinu.

„Hannes Þór stendur vaktina í markinu, treysti honum fyrir því verkefni eins og oft áður. Birkir Már mun stýra vörninni fyrir mig og ég hef fulla trú á að hann geri það vel. Með honum eru tveir góðkunningjar mínir þeir Hallur Flosa og Haukur halti," segir Arnór Ingvi og á þá við Hauk Heiðar leikmann KA sem gekk í raðir uppeldisfélagsins frá AIK í vetur.

Óskar Örn er Óskar Örn
„Andri Yeoman er ekki með lungu og verður því aldrei þreyttur og tekur yfir miðjuna. Óskar Örn er Óskar Örn. Rennur grænt blóð í okkur báðum. Skilar inn mikilvægum punktum."

Í fremstu víglínu er hann síðan með þrjá leikmenn úr þremur liðum sem hann hefur trú á að verði á eldi í sumar.

„Bjöggi Stef er maður sem er að fara að raða inn mörkum í sumar. Þeir Elfar og Tryggvi munu fylgja fast á hæla hans."

Óskar Örn er fyrirliði liðsins og Hannes Þór Halldórsson varafyrirliði.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner