Fotbolti.net
13.08.26 - 18:39
Brynjar Ingi Erluson

Zaha æfir hjá Palace

Zaha æfir hjá Palace
Canon

Mynd: EPA

Wilfried Zaha nýtir þessa dagana æfingaaðstöðu Crystal Palace á meðan hann leitar sér að nýju félagi.
Zaha, sem er 33 ára gamall, er án félags eftir að hafa yfirgefið bandaríska félagið Charlotte FC.

Sóknarmaðurinn er uppalinn hjá Palace og var mikilvægur hjá liðinu um árabil, en hann fékk leyfi til þess að nýta sér æfingaaðstöðu liðsins á meðan hann leitar sér að nýju félagi.

Sky Sports segir Palace ekki vera að íhuga að gera samning við hann.

Zaha spilaði 458 leiki og kom að 144 mörkum á tíu árum sínum í aðalliði félagsins. Þrisvar sinnum var hann valinn leikmaður ársins hjá Palace og á hann þá flest úrvalsdeildarmörk fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.