Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Right to Dream Park í Farum
Nordsjælland
Nordsjælland
5 - 0
Valur
Valur
Samtals 7 - 0
Hjalte Boe 4'1 - 0Villum Berthelsen 45'2 - 0Markus Walker 61'3 - 0Lamine Sadio 71'4 - 0Levy Nene 73'5 - 0
Dómari: Edgars Malcevs (Lettland)

SKÝRSLAN: Ekki hygge fyrir Valsmenn

Hvað réði úrslitum?

Nordsjælland er betra liðið, það er klárt. Leikmenn Vals reyndu sitt besta en það var ekki nóg. Vinstra kanturinn hjá Nordsjælland er ótrúleg, þeir Lähteenmäki og prinsinn sjálfur Amoako. Verður gaman að fylgjast með hvert prinsinn fer eftir Nordsjælland og hvort að eitthver lið séu að fylgjast með honum í sumarglugganum. Samkvæmt Fotmob voru heimamenn með 34 skot og 14 á markið, Valur var með 7 skot og 2 markið, það segir margt.

Bestu leikmenn

1. Samúel Kári Friðjónsson

Virtist eitt af þeim fáum sem voru ekki hræddir við Nordsjælland, hann var að henda sér í tæklingar og hann neyddi dómarann í skjáinn. Samúel hætti ekki þrátt fyrir að leikurinn var orðinn 5-0, þrátt fyrir að sumir leikmenn voru hættir að taka þátt og vildu fara heim.

2. Frederik Schram

Án hans hefði þessi leikur farið 20-0. Það er gott að vera með góðan markmann og það hefur þessi evrópureisa Vals sýnt sig. Ekki láta útslitin blekkja þig.

Atvikið

Atvikið er fyrsta mark leiksins, þetta var búið þá og því miður þá átti Valsmenn engan sjens.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn fara heim, þeir fá KA í heimsókn á mánudaginn.

Vondur dagur

Jakob Franz á að gera betur í fyrsta markinu, hann á að vera sterkari en þetta, Amoako var að hægelda hann allan leikinn. Svo voru það nokkrar hauskúpusendingar hér og þar. Tryggvi fékk nokkar sóknir þar sem hann á að gera betur og taka betri ákvarðanir. Valsmenn eftir þriðja markið hættu að taka þátt og vildu fara heim, þetta var ekki gott í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7

Sammála dómnum þegar Valsmenn vildu víti. Fyrir utan það var þetta góð vakt en menn verða að hætta að vera svona lengi í VAR. Dómarinn var í sirka 2-3 mínútur að skoða í skjánum, þreytt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.