Lið vikunnar í enska - Henderson stökk ekki yfir auglýsingaskilti

Markvörður: Walter Benítez (Crystal Palace) - Átti mikilvægar markvörslur í 3-1 sigri á Nottingham Forest.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Ferdi Kadioglu (Brighton) - Kom í veg fyrir að Sunderland myndi jafna í 1-1 en Brighton vann að lokum 2-0.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jefferson Lerma (Crystal Palace) - Miðjumaður sem lék afskaplega vel í öftustu línu.

Mynd: EPA

Varnarmaður: James Justin (Leeds) - Á mikið lof skilið. Skoraði frábært mark í naumu tapi gegn Arsenal.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Ethan Pinnock (Coventry) - Hefur verið algörlega frábær fyrir Coventry síðan hann kom frá Brentford.

Mynd: Coventry

Varnarmaður: Riccardo Calafiori (Arsenal) - Öruggur varnarlega og býður upp á mikla ógn sóknarlega að auki.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Matt Grimes (Coventry) - Margir settu spurningamerki við það hvort hann gæti tekið skrefið upp í úrvalsdeildina en í 5-1 sigrinum gegn Newcastle sýndi hann að hann getur það svo sannarlega.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Jordan Henderson (Chelsea) - Skoraði tvö frábær mörk í 5-1 sigri gegn Bournemouth. Sem betur fer stökk hann ekki yfir auglýsingaskilti þegar hann fagnaði.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Rayan Cherki (Manchester City) - Leikmaður sem er stórskemmtilegt að horfa á spila. Skoraði í 3-0 sigrinum gegn Liverpool í stórleik helgarinnar.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Joao Pedro (Chelsea) - Skoraði tvö um helgina. Elskar að vera með Morgan Rogers og Cole Palmer rétt fyrir aftan sig.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Jeremy Doku (Manchester City) - Breytti leiknum gegn Liverpool með marki og stoðsendingu.

Mynd: EPA


Mynd: BBC

Stjórinn: Enzo Maresca (Manchester City) - Skapaði 'við gegn öllum' stemningu og skilaði sigri á Anfield í öllum storminum.

Mynd: EPA
