Fotbolti.net
14.08.26 - 18:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Afar ánægður með skrefið norður - Tók fyrirtækið með sér og stækkar það

Afar ánægður með að hafa tekið þetta skref hingað til Akureyrar

Afar ánægður með að hafa tekið þetta skref hingað til Akureyrar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson hefur komið öflugur inn í lið Þórs eftir komuna á láni frá KR fyrir um mánuði síðan. Þór fékk sjö stig úr fyrstu þremur leikjunum eftir komu Gyrðis en tapaði svo gegn ÍA um síðustu helgi.

Þórsarar undirbúa sig nú fyrir leik gegn Keflavík á morgun. Sá leikur hefst klukkan 17:00 og fer fram á VÍS vellinum. Sjö stig skilja liðin að en þau voru bæði í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Fótbolti.net ræddi við Gyrði um komandi leik og fyrstu vikurnar fyrir norðan.
Fékk að mæta sem „einhver vinur Dags" og eitt leiddi af öðru
TENGT EFNI

Fékk að mæta sem „einhver vinur Dags" og eitt leiddi af öðru

Þurfa að vera þeir sjálfir
„Mér líst afar vel á þennan leik, er mjög spenntur að spila leikinn.
Undirbúningurinn hefur verið mjög góður. Erum búnir að taka góða
æfingaviku, skerpa á þeim hlutum sem við vildum gera og erum heldur betur klárir í leikinn,"
segir Gyrðir.

„Það sem við þurfum að gera til að vinna Keflavík er að vera við sjálfir og mæta og spila okkar bolta. Þurfum að mæta með mikla ákefð og orku í leikinn eins og við höfum gert í síðustu leikjum."

Stuðningurinn hjálpar gríðarlega
Hvernig minningar átt þú af leikjum gegn Keflavík?

„Ég hef spilað nokkra leiki á móti Keflavík og alltaf hafa þetta verið
skemmtilegir leikir og á ekki von á öðru nema leikurinn á morgun muni verða skemmtilegur."

„Ég vona bara að Þórsarar fjölmenni á leikinn eins og síðustu leikjum. Stuðningurinn í síðustu heimaleikjum hefur verið geggjaður og hefur hjálpað okkur gríðarlega mikið."


Hungraðir í að gera vel fyrir klúbbinn
Hvernig líður þér með gengið hjá Þór síðasta mánuðinn?

„Mér líður bara mjög vel með gengið í seinustu leikjum. Það er búinn að vera mikill stígandi í okkar leik milli leikja og erum við ánægðir með það. Svo auðvitað erum við búnir að ná í mörg stig í seinustu leikjum og það er auðvitað það sem þetta snýst um. Þurfum bara að halda áfram að spila okkar leik og þá koma stigin til okkar."

„Það hefur ekkert komið mér neitt sérstaklega á óvart frá komunni norður, við erum með mjög flott lið, það er góð stemning í liðinu, allir eru að vinna saman og erum við allir hungraðir í að gera vel fyrir klúbbinn."

Afar ánægður með skrefið
Gyrðir var í aukahlutverki hjá KR áður en hann fór á láni til Þórs. Hvernig er að vera farinn að spila reglulega aftur?

„Það er náttúrulega bara geggjað, fannst það mikilvægt fyrir mig á þessum tímapunkti að ég þurfti að fá að spila meira. Afar ánægður með að hafa tekið þetta skref hingað til Akureyrar."

Núna verður maður að trúa Akureyringum
Hvernig hefur fyrsti mánuðurinn verið fyrir norðan?

„Fyrsti mánuðurinn hefur verið alveg frábær hér fyrir norðan. Akureyringar hafa tekið mér mjög vel og hefur þetta verið bara eins og í sögu. Veðrið er búið að vera frábært síðan að ég kom. Þannig núna verður maður að fara trúa Akureyringum að besta veðrið sé alltaf á Akureyri," segir Gyrðir og hlær.

Áskrifendum að fjölga
Þú ert með klósettpappírs bisness er það ekki, eru Akureyringar virkir þar?

„Jú hárrétt, maður er á fullu í fyrirtækjarekstri, er með fyrirtækið Rúllupp. Erum að selja bambus klósettpappír í áskrift til fólks og fyrirtækja. Sendum beint heim að dyrum."

„Þegar ég tók þá ákvörðun að fara til Akureyrar þá var eina vitið að taka fyrirtækið með sér og stækka það. Akureyringar eru að taka afar vel í þetta og er alltaf að fjölga áskrifendum!"
segir Gyrðir að lokum.

Smelltu hér til að skoða heimasíðu Rúllupp
Það er góð stemning í liðinu, allir eru að vinna saman og erum við allir hungraðir í að gera vel fyrir klúbbinn

Það er góð stemning í liðinu, allir eru að vinna saman og erum við allir hungraðir í að gera vel fyrir klúbbinn

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Akureyringar hafa tekið mér mjög vel og hefur þetta verið bara eins og í sögu

Akureyringar hafa tekið mér mjög vel og hefur þetta verið bara eins og í sögu

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Erum búnir að taka góða æfingaviku, skerpa á þeim hlutum sem við vildum gera og erum heldur betur klárir í leikinn

Erum búnir að taka góða æfingaviku, skerpa á þeim hlutum sem við vildum gera og erum heldur betur klárir í leikinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þurfum að mæta með mikla ákefð og orku í leikinn eins og við höfum gert í síðustu leikjum

Þurfum að mæta með mikla ákefð og orku í leikinn eins og við höfum gert í síðustu leikjum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.