Fotbolti.net
14.10.26 - 19:58
Brynjar Ingi Erluson

Iraola: Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin

Andoni Iraola

Andoni Iraola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var í skýjunum með 6-3 sigurinn á LASK Linz í Meistaradeildinni í kvöld en viðurkenndi að það hefðu líklega verið mistök að skipta báðum miðvörðunum út á sama tíma.
Meistaradeildin: Barcola með þrennu í níu marka leik
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Barcola með þrennu í níu marka leik

Sigur Liverpool var aldrei í hættu en Bradley Barcola stal senunni með þrennu. Frakkinn hafði ekki náð að skora í fyrstu leikjum sínum fyrir félagið en nú opnuðust flóðgáttirnar heldur betur.

Bæði Barcola og Florian Wirtz hafa fengið gagnrýni fyrir frammistöðu sína, ekki síst í ljósi þess hversu mikið Liverpool greiddi fyrir þá, en báðir áttu mjög góðan leik í kvöld.

„Við sóttum mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það er ekkert auðvelt að spila gegn fimm manna vörn þegar andstæðingurinn liggur svona aftarlega, en mér fannst við finna góð svæði á milli línanna með þrjá menn fremst. Í seinni hálfleik snerist þetta meira um að nýta svæðin sem opnuðust, en sóknarlega var þetta nánast fullkominn leikur.“

„Ég er ótrúlega ánægður fyrir hönd Bradley. Þú spurðir mig í gær út í það að hann væri ekki búinn að skila mörkum og stoðsendingum, og það sama gilti um Florian Wirtz. Báðir spiluðu frábærlega í kvöld og skiptu sköpum. Fyrir utan þrennuna var Bradley stöðug ógn, bæði í einn á einn stöðum og með hlaupum sínum fyrir aftan vörnina. Ég er mjög ánægður fyrir hönd þeirra beggja.“

„Þetta er mjög gott fyrir sjálfstraustið og þeir finna að við treystum þeim til að taka mikla ábyrgð. Við vildum líka njóta þess að spila á útivelli í Meistaradeildinni og ég held að þessi leikur muni gera þeim báðum mjög gott.“

„Það er alltaf mikið afrek að skora þrennu í Meistaradeildinni. Bradley var mjög líflegur á æfingu í gær og stundum finnur maður að leikmaður er á góðum stað, þótt maður viti auðvitað aldrei hvernig næsti leikur þróast. Þess vegna kom frammistaða hans mér ekkert sérstaklega á óvart. Við höfðum góða tilfinningu fyrir honum fyrir leikinn,“
sagði Iraola.

Iraola gerði tvöfalda breytingu á miðvarðastöðunum á 62. mínútu þegar hann tók Ronald Araujo og Jeremy Jacquet af velli og setti Virgil van Dijk og Joe Gomez inn á. Eftir þá breytingu fór hins vegar að bera á vandræðum í vörn Liverpool sem fékk á sig þrjú mörk.

„Það er ástæða fyrir því að þjálfarar skipta yfirleitt ekki báðum miðvörðunum út á sama tíma. Það er erfitt að gera slíka breytingu en ég var farinn að hugsa um næsta leik. Við eigum annan leik eftir þrjá daga og mér fannst þetta rétti tíminn til að hvíla menn. Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin að taka báða miðverðina af velli í einu,“ sagði Iraola í lokin.
Iraola: Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin
Canon

Mynd: EPA

Iraola: Kannski var það samt ekki besta ákvörðunin
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.