Fotbolti.net
15.06.26 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þrír í bann eftir leiki gærdagsins

Þrír í bann eftir leiki gærdagsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikmenn í Bestu deildinni komu sér í leikbann í gær með því að fá sín fjórðu gulu spjöld í sumar.

Það eru þeir Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Þór), Stefan Alexander Ljubicic (Keflavík) og Ísak Óli Ólafsson (FH).
FH tekur á móti Þór næsta sunnudag og verður FH án fyrirliða síns, Ísaks, á meðan Þór verður án Bjarna og Christian Greko Jakobsen sem tekur út sinn seinni leik í tveggja leikja banni.

Á sama tíma heimsækir Keflavík Val og verður án síns aðalframherja, Stefans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.