Fotbolti.net
15.06.26 - 16:11
Elvar Geir Magnússon

Vozinha mættur í yfir 40 ára hópinn á HM

Vozinha.

Vozinha.

Canon

Mynd: EPA

Vozinha, markvörður Grænhöfðaeyja, er kominn í hóp leikmanna sem hafa spilað á HM eftir að hafa orðið 40 ára.

Hann er í markinu gegn Spáni en leikurinn hófst klukkan 16.

Vozinha er markvörður Chaves sem leikur í portúgölsku B-deildinni og hefur leikið 81 landsleik fyrir Grænhöfðaeyjar.
Hann er kominn í þennan hóp:

Essam El Hadary - Egyptaland gegn Sádi-Arabíu 2018 - 45 ára, 161 daga

Faryd Mondragon – Kólumbía gegn Japan 2014 – 43 ára, 3 daga

Roger Milla – Kamerún gegn Rússlandi 1994 – 42 ára, 39 daga

Pat Jennings – Norður-Írland gegn Brasilíu – 41 árs, 0 daga

Peter Shilton – England gegn Ítalíu 1990 – 40 ára 292 daga

Dino Zoff – Ítalía gegn Þýskalandi 1992 – 40 ára, 133 daga

Manuel Neuer - Þýskaland gegn Curacao 2026 - 40 ára, 79 daga

Ali Boumnijel – Túnis gegn Úkraínu 2006 – 40 ára, 71 daga

Vozinha - Grænhöfðaeyjar gegn Spáni 2026 - 40 ára, 12 daga
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.