Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   fim 15. ágúst 2019 20:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jón Óli: Ofboðslega mikið af einstaklingsmistökum sem eru að kosta okkur
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Lítið hægt að segja við þessu, við reyndum eins og við gátum en við erum að "díla" við viss einstaklingsmistök innan liðsins sem valda okkur alltaf stórskaða," sagði Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, eftir 2-1 tap liðsins gegn Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 ÍBV.

Staðan var 0-0 í hálfleik og Jón Óli sagði í viðtalinu hvað hann sagði við leikmenn í hléinu en Stjarnan skoraði strax í upphafi seinni hálfeiks.

„Það síðasta sem ég sagði í hléinu var að það þyrfti að byrja seinni hálfleikinn strax en það voru slæm mistök út á miðjum velli þegar ekkert var að gerast og í kjölfarið skora þær."

ÍBV jafnaði seinna í hálfleiknum en Stjarnan komst aftur yfir.

„Mér fannst við eiga í erfiðleikum með að komast ofar á völlinn. Miðjumennirnir þurftu svolítið mikið að hlaupa til baka. Því miður er það þannig að ef mörkin eru skoðuð sem við erum að fá á okkur þá eru þetta ofboðslega mikið af einstaklingsmistökum þannig að maður er aldrei rólegur þó leikurinn sé í jafnvægi."

Jón Óli var svo spurður út í framhaldið hjá ÍBV.

„Framhaldið verður erfitt. Við erum í erfiðleikum, þetta er árið sem allt gengur á afturfótunum. Við þurfum að taka einn leik fyrir í einu og spyrja að leikslokum."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner