Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 15. ágúst 2020 10:30
Elvar Geir Magnússon
Elli Eiríks dæmir leik Víkings og Breiðabliks
Erlendur Eiríksson.
Erlendur Eiríksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur verið opinberað hvaða dómarar dæma leikina fjóra sem verða í dag og á morgun í Pepsi Max-deild karla.

Erlendur Eiríksson dæmir stórleik Víkings og Breiðabliks annað kvöld en þessi reynslumikli dómari er mættur aftur í slaginn eftir að hafa glímt við meiðsli í upphafi tímabils.

Tveir leikir eru í dag. Jóhann Ingi Jónsson dæmir viðureign ÍA og Fylkis og á Hlíðarenda heldur Einar Ingi Jóhannsson um flautuna þegar Valur og KA eigast við.

laugardagur 15. ágúst
16:00 ÍA-Fylkir (Norðurálsvöllurinn) - Jóhann Ingi Jónsson
16:00 Valur-KA (Origo völlurinn) - Einar Ingi Jóhannsson

sunnudagur 16. ágúst
17:00 HK-Fjölnir (Kórinn) - Helgi Mikael Jónasson
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur) - Erlendur Eiríksson

mánudagur 17. ágúst
18:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner