Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. september 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Crystal Palace og Sheffield United reyna við Brewster
Mynd: Getty Images
Sheffield United og Crystal Palace hafa bæði átt í viðræðum við Liverpool um að fá sóknarmanninn Rhian Brewster í sínar raðir.

Liverpool hefur ekki ennþá ákveðið hvort hinn tvítugi Brewster verði seldur eða ekki.

Ef Brewster verður seldur mun Liverpool líklega gera klásúlu um að geta keypt hann til baka síðar.

Brewster var í láni hjá Swansea síðari hlutann á síðasta tímabili þar sem hann skoraði ellefu mörk í Championship deildinni.

Brewster ku sjálfur hafa áhuga á að fara annað til að fá spiltíma en fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner