Breiðablik mætir PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna en fyrri leikurinn verður á Kópavogsvelli annað kvöld.
Leikurinn verður sýndur beint á RÚV 2 en um veigamikla útsendingu verður að ræða.
Franskt sjónvarpsfólk er á leiðinni til landsins en beIN SPORTS sjónvarpsrisinn mun sýna leikinn beint þar í landi.
Leikurinn verður sýndur beint á RÚV 2 en um veigamikla útsendingu verður að ræða.
Franskt sjónvarpsfólk er á leiðinni til landsins en beIN SPORTS sjónvarpsrisinn mun sýna leikinn beint þar í landi.
Leikurinn verður á rásum beIN víðar um heim. Sjónvarpsáhorfendur í Bandaríkjunum og Kanada, Ástralíu, Asíu og Tyrklandi munu geta fylgst með Blikastelpum etja kappi við gríðarlega sterkt lið PSG.
Seinni leikurinn verður einnig á RÚV.
Ekki missa af þessum risaleik 👀⚽️ Förum í loftið kl. 18:10 á Kópavogsvelli annað kvöld! pic.twitter.com/CL416QSGkH
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 15, 2019
Athugasemdir