Fotbolti.net
15.10.26 - 14:24
Elvar Geir Magnússon

Meiðsli Leoni flókin og endurkoman frestast

Giovanni Leoni.

Giovanni Leoni.

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segir að meiðsli varnarmannsins Giovanni Leoni séu enn flóknari en fyrst var talið.

Leoni, sem er 19 ára, kom til Liverpool frá Parma í fyrra fyrir 26 milljónir punda. Hann náði aðeins að spila einn leik með Liverpool, gegn Southampton í deildabikarnum í september. Þar stóð hann sig afar vel en varð fyrir því áfalli að slíta krossband undir lok leiksins.
Góðar fréttir fyrir Liverpool
TENGT EFNI

Góðar fréttir fyrir Liverpool

Búist var við því að hann væri byrjaður að æfa með liðinu að nýju um þetta leyti en það frestast eitthvað og vonast er til að hann snúi aftur til æfinga í næsta mánuði.

„Þetta tekur meiri tíma en við vildum. Það var áætlunin að Gio myndi æfa með liðinu í síðasta landsleikjahléi. Nú stefnum við á næsta landsleikjahlé. Þetta var ekki bara krossband. Þetta voru slæm meiðsli, margt í kringum hnéð skaddaðist líka. Við þurfum að vera varkárir með hann," segir Iraola.
Meiðsli Leoni flókin og endurkoman frestast
Canon

Mynd: Giovanni Leoni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.