Máni um Jón Þór: Ég hef trú á þessu

Þorkell Máni Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frumraun Jóns Þórs í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorkell Máni Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tekur á móti Breiðabliki á Samsungvellinum í 10. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Mána í aðdraganda leiksins og í ljósi þjálfarabreytingu liðsins.
Máni telur ekki ástæðu til annars en að horfa bjartsýnt á framhaldið, hann hefur mikla trú á Jóni sem þjálfara en tók það þó fram að hann þurfi að fá tíma.
„Jón Þór mun klárlega leggja mikið upp úr því að laga varnarleikinn þar sem það er einn af hans bestu kostum sem þjálfari. Stjarnan á mikið af efnilegum leikmönnum úti um allan bæ og það hefur bara vantað smá Garðbæinga DNA í þetta lið seinustu ár.''
Máni vonar að sitt lið mæti tilbúið í leik kvöldsins. „Það vita allir að liði eigi mikið inni og maður mun alveg gefa Jóni smá tíma með þetta lið. Jón Þór hefur fengið kannski tvær til þrjár æfingar með þetta lið og það tekur oftast tíma fyrir þjálfara að koma sínum áherslubreytingum til skila inn á vellinum en ég hef trú á þessu.''
Viðtalið er hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

TENGT EFNI
Endurstilling í Garðabænum og leit Blika að stöðugleikanum

Frumraun Jóns Þórs í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð