Óli Kristjáns um Ólaf Inga: Smá hnökrar sem hafa myndast


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi kom inn á erfiðum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tekur á móti Breiðabliki á Samsungvellinum í 10. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Kristjánsson í aðdraganda leiksins og í ljósi þjálfarabreytinga liðsins.
Óli telur tímabilið hefur verið upp og niður hjá Blikum.
„Eins og mikið hefur verið talað um þá hefur tímabil Breiðabliks verið upp og niður og maður veltir því fyrir sér hvers vegna það sé. Það hafa verið góðar frammistöður og slæmar, mikill óstöðugleiki en það eru margar ástæður fyrir því. Það er auðvitað ný rödd í klefanum og utan frá þá eru áherslur sem eru að einhverju leyti frábrugðnar því sem hafa verið undanfarin ár.
Óli nefnir aðra mögulega ástæðu fyrir gengi liðsins á tímabilinu til þessa.
„Ég held að hvernig Ólafur Ingi kom inn í fyrra, beint í Evrópukeppni og með styttri undirbúningstíma, sé klárlega ein skýring á genginu. Hann er að kynnast leikmönnunum og þeir að kynnast honum og það eru smá hnökrar sem hafa myndast við það.''
Óli nefnir einnig breyttar áherslur sem nafni hans hefur komið með.
„Dóri lagði meira upp úr varnarleik frekar en Óskar þó ákefðin framan af hafi verið mjög svipuð og hjá Óskari en síðan kemur Óli inn og setur upp öðruvísi strúktúr.''
Viðtalið er hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Endurstilling í Garðabænum og leit Blika að stöðugleikanum

Ólafur Ingi kom inn á erfiðum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


