Fotbolti.net
16.07.26 - 19:34
Brynjar Ingi Erluson

Ari Leifsson í Stjörnuna (Staðfest)

Ari Leifsson í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Instagram/Stjarnan

Varnarmaðurinn Ari Leifsson hefur samið við Stjörnuna en félagið tilkynnti komu hans aðeins stuttu eftir að hafa tryggt sig áfram í 2. umferð í Sambandsdeild Evrópu.
Mikil barátta var um Ara, sem sneri heim úr atvinnumennsku eftir veru hjá Kolding og Strömsgodset.

Hann var lengi talinn á leið til Vals, en staðan breyttist eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn.

Breiðablik og Stjarnan voru í kjölfarið sögð fremst í kapphlaupinu ásamt ÍA, en það voru Stjörnumenn sem höfðu betur og lönduðu Ara.

Ari er fæddur árið 1998 og lék síðast á Íslandi árið 2019. Hann var keyptur til Strömsgodset frá Fylki 2020 og árið 2024 gekk hann í raðir Kolding. Samningur hans við danska félagið rann út fyrr í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.