Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
   fös 16. ágúst 2019 21:33
Hilmar Jökull Stefánsson
Ási Arnars: Orðnir leiðir á jafnteflum
Ási Arnars vill að sínir menn nýti færin betur enda orðinn leiður á jafnteflum.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis og Gunnar Már Guðmundsson
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis og Gunnar Már Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis var að vonum svekktur með jafntefli á heimavelli gegn Gróttu, þar sem hans menn nýttu ekki þau færi sem þeir sköpuðu sér í leiknum.



„Fyrstu viðbrögð er bara að ég er svekktur að ná ekki í þrjú stig. Nýttum ekki færin, erum þrisvar, fjórum sinnum einir í gegn og erum í góðum möguleikum. Leikurinn heilt yfir opinn og það gat svo sem allt gerst. Grótta þekktir fyrir að skora undir lokin þannig að maður var svo sem aldrei rólegur með það en heilt yfir fannst mér ívið sterkari og fá opnari færi og þess vegna svekktur að klára ekki leikinn.“




Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  0 Grótta

Aðspurður að því hvað tæki við hjá Fjölni hafði Ási þetta að segja um:



„Það er bara ótrauðir áfram, fullt af erfiðum leikjum eftir en við erum orðnir leiðir á þessum jafnteflum. Það telur hægt að gera jafntefli og við þurfum að fara stíga aðeins upp til að klára leikina, við viljum fá þrjú stig. Við erum bara ekki að nýta færin.“



Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner