16.08.26 - 10:00
Kári Snorrason
Taplausa hrina FH-inga senn á enda?

Ósigraðir í síðustu níu leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ósigraðir í síðustu níu leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH er það lið í Bestu deildinni sem hefur leikið hvað flesta leiki í röð án þess að tapa. Síðasti tapleikur liðsins kom gegn ÍA þann 29. maí.
Síðan þá hefur Fimleikafélagið spilað níu leiki í deildinni, gert sex jafntefli og unnið þrjá þeirra.
Klukkan 18:00 í dag tekur liðið á móti Íslandsmeisturum Víkings. Ef litið er til síðustu viðureigna liðanna er sagan ekki hliðholl Hafnfirðingum. FH vann síðast Víking árið 2020.
Í síðustu fimmtán viðureignum liðanna, í bæði deild og bikar, hefur Víkingur unnið fjórtán þeirra og einum leik lokið með jafntefli.
Veðbankinn Epicbet hefur takmarkaða trú á FH en rúmlega fimm er í stuðul á FH sigri. Þá er 1.58 í stuðul á Víkinga.

sunnudagur 16. ágúst
Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)