Fotbolti.net
16.10.19 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Bara fjórir eftir úr fyrsta byrjunarliði Klopp hjá Liverpool

Bara fjórir eftir úr fyrsta byrjunarliði Klopp hjá Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Á morgun eru fjögur ár síðan Jurgen Klopp stýrði Liverpool í sínum fyrsta leik. Klopp tók við af Brendan Rodgers í október 2015 og í fyrsta leik liðsins gerði liðið markalaust jafntefli við Tottenham.

Sky Sports er með grein í dag sem fjallar um miklar breytingar sem hafa orðið síðan Klopp tók við Liverpool.
Byrjunarlið Liverpool gegn Tottenham 2015: Mignolet, Clyne, Sakho, Skrtel, Moreno; Milner, Lucas, Can, Coutinho, Lallana; Origi
Varamenn: Bogdan, Toure, Randall, Allen, Ibe, Teixeira, Sinclair

Síðan í þessum fyrsta leik hefur Klopp gjörbylt leikmannahópnum. Einungis fjórir leikmenn úr byrjunarliðinu gegn Tottenham eru ennþá í leikmannahópnum en það eru Nathaniel Clyne, James Milner, Adam Lallana og Divock Origi. Milner er sá eini af þeim sem hefur gert sig gildandi í byrjunarliðinu á undanförnum árum.

„Þetta sýnir ekki bara hversu langt Klopp hefur náð heldur líka hversu ótrúlegt starf hann hefur unnið. Hann hefur gert Liverpool aftur að alvöru afli í evrópskum fótbolta og það hræðir sum af stærstu félögum Evrópu," segir David Maddock hjá Daily Mirror í greininni.

Klopp kom strax að eigin leikstíl hjá Liverpool en pressa liðsins hefur vakið athygli undanfarin ár og leikmenn hafa skilað mögnuðum hlaupatölum í leikjum.

Liverpool fór í úrslitaleik enska deildabikarsins og Evrópudeildarinnar á fyrsta tímabili Klopp. Liðið tapaði gegn Real Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar 2018 en vann síðan Meistaradeildina á síðasta tímabili.

Á þessu tímabili hefur Liverpool unnið alla átta leiki sína í ensku úrvalsdeildinni og er með átta stiga forskot á toppnum fyrir leikinn gegn Manchester United um helgina.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.