Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. október 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Watford hafnar tilboði Crystal Palace í Sarr
Mynd: Getty Images
Watford hefur hafnað 25 milljóna punda tilboði frá Crystal Palace í kantmanninn Ismaila Sarr.

Hinn 22 ára gamli Sarr kom til Watford á 40 milljónir punda frá Rennes í fyrra.

Eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni sýndu nokkur félög áhuga á að fá Sarr í sumar, þar á meðal Manchester United.

Watford vill hins vegar fá meira en 40 milljónir punda fyrir Sarr og því fékk Crystal Palace þvert nei við tilboði sínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner