16.10.26 - 17:53
Elvar Geir Magnússon
Natasha hefur lagt skóna á hilluna

Natasha heiðruð fyrir leik.

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Natasha heiðruð fyrir leik.

Mynd: Grindavík/Njarðvík

Nú stendur yfir leikur Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV í Bestu deild kvenna. Fyrir leikinn var íslenska landsliðskonan Natasha Anasi heiðruð en hún hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Natasha er 35 ára og á níu landsleiki og eitt mark á ferilskránni fyrir íslenska kvennalandsliðið.
Natasha er 35 ára og á níu landsleiki og eitt mark á ferilskránni fyrir íslenska kvennalandsliðið.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 0 ÍBV
Hún spilaði fyrst á Íslandi um mitt sumar 2014 og á að baki hátt í 200 deildarleiki á Íslandi.
Hún lék með ÍBV, Keflavík og Breiðabliki áður en kallið kom frá Noregi þar sem hún samdi við Brann. Þar glímdi hún við erfið meiðsli og sneri svo til Vals í sumarglugganum 2024. Grindavík/Njarðvík fékk hana til sín fyrir ári síðan.
Natasha er fædd í Bandaríkjunum og fékk árið 2019 íslenskan ríkisborgararétt.
Natasha tilkynnti í dag að hún er ólétt. Hún er eiginkona Rúnars Inga Erlingssonar sem er þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í körfubolta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð