16.10.26 - 13:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svekktur Adolf Daði missir af leiknum - „Hefði bara sleppt þessu prófi hefði ég vitað þetta fyrr"

Nær ekki leiknum gegn ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur skorað sex mörk á tímabilinu og þar af eru tvö í síðustu þremur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það skemmtilegasta sem ég geri er að spila fótbolta, ekki að setja í kennslustofu og vinna með einhverjar tölur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nær ekki leiknum gegn ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adolf Daði Birgisson, leikmaður FH, verður ekki með liðinu gegn ÍBV í Bestu deildinni í dag. Fyrr í vikunni var ákveðið að flýta leiknum vegna veðurs, en upphaflega átti leikurinn að fara fram á morgun.
Adolf fór í próf í morgun og missti því af siglingu til Eyja. Í gærkvöldi leit út fyrir að hann gæti farið með Herjólfi frá Þorlákshöfn en ákveðið var að sigla frá Landeyjahöfn í dag og óvíst er hvenær næst verður siglt. Svekktur Adolf ræddi við Fótbolta.net.

TENGT EFNI
Missir mögulega af leiknum í Eyjum - „Allir hlynntir því að spila frekar í dag"
„Nei, ég er ekki mættur til Eyja og mér sýnist það fara þannig að ég nái ekki neinum bát til Eyja. Það átti að tilkynna um næstu siglingu fyrir klukkan þrjú og ég bý á Álftanesi þannig það tekur alveg tæpa tvo tíma að keyra. Ég myndi aldrei ná þessu," segir Adolf Daði.
Þú hefur ekki fengið þau skilaboð að vera á Selfossi og vera klár ef einhver gluggi opnaðist?
„Nei, ekkert þannig. Mér var bara sagt að vera klár, og ég var það. En í ljósi þess að þeir ætla ekki að tilkynna fyrr en klukkan þrjú hvað verður með næstu siglingu, og leikurinn er klukkan fimm, þá er lítið hægt að gera."
„Ég tek æfingu núna og svo horfi ég bara á leikinn með fjölskyldunni. Þetta er leiðindamál því forgangsröðunin hjá mér er fyrst og fremst fótbolti og svo skóli númer tvö. Eins og þetta leit út þá átti ég að geta náð prófinu og svo mætt í leikinn, 'win-win' staða. En svo var ákveðið að breyta siglingaáætluninni, siglt úr Landeyjahöfn, ég sé það bara í morgun á leið í prófið, og þá var þetta 'game-over'."
„Ég hefði bara sleppt þessu prófi hefði ég vitað þetta fyrr. Fótboltinn er númer eitt hjá mér og skólinn númer tvö. Það skemmtilegasta sem ég geri er að spila fótbolta, ekki að setja í kennslustofu og vinna með einhverjar tölur. Það gekk reyndar mjög vel í prófinu, þannig það er einhver sigur í dag."
Adolf hefur skorað tvö mörk í síðustu þremur leikjum.
„Allt liðið í heild er á mikilli uppleið og mér finnst ég hafa verið partur af því. Þetta lítur mjög vel út hjá FH núna finnst mér."
„Núna tek ég æfingu í Krikanum, vonandi eru fleiri góðir menn hérna sem ég hitti og æfi með. Svo tek ég leikinn í sjónvarpinu. Ég var búinn að hringja tvisvar og fékk þau skilaboð að næstu upplýsingar kæmu ekki fyrr en um þrjú. Leikurinn er klukkan fimm þannig að þetta myndi ekki nást. Ég tek því miður ekki þátt í þessum leik," segir Adolf Daði að lokum.
Þú hefur ekki fengið þau skilaboð að vera á Selfossi og vera klár ef einhver gluggi opnaðist?
„Nei, ekkert þannig. Mér var bara sagt að vera klár, og ég var það. En í ljósi þess að þeir ætla ekki að tilkynna fyrr en klukkan þrjú hvað verður með næstu siglingu, og leikurinn er klukkan fimm, þá er lítið hægt að gera."
„Ég tek æfingu núna og svo horfi ég bara á leikinn með fjölskyldunni. Þetta er leiðindamál því forgangsröðunin hjá mér er fyrst og fremst fótbolti og svo skóli númer tvö. Eins og þetta leit út þá átti ég að geta náð prófinu og svo mætt í leikinn, 'win-win' staða. En svo var ákveðið að breyta siglingaáætluninni, siglt úr Landeyjahöfn, ég sé það bara í morgun á leið í prófið, og þá var þetta 'game-over'."
„Ég hefði bara sleppt þessu prófi hefði ég vitað þetta fyrr. Fótboltinn er númer eitt hjá mér og skólinn númer tvö. Það skemmtilegasta sem ég geri er að spila fótbolta, ekki að setja í kennslustofu og vinna með einhverjar tölur. Það gekk reyndar mjög vel í prófinu, þannig það er einhver sigur í dag."
Adolf hefur skorað tvö mörk í síðustu þremur leikjum.
„Allt liðið í heild er á mikilli uppleið og mér finnst ég hafa verið partur af því. Þetta lítur mjög vel út hjá FH núna finnst mér."
„Núna tek ég æfingu í Krikanum, vonandi eru fleiri góðir menn hérna sem ég hitti og æfi með. Svo tek ég leikinn í sjónvarpinu. Ég var búinn að hringja tvisvar og fékk þau skilaboð að næstu upplýsingar kæmu ekki fyrr en um þrjú. Leikurinn er klukkan fimm þannig að þetta myndi ekki nást. Ég tek því miður ekki þátt í þessum leik," segir Adolf Daði að lokum.

Hefur skorað sex mörk á tímabilinu og þar af eru tvö í síðustu þremur leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það skemmtilegasta sem ég geri er að spila fótbolta, ekki að setja í kennslustofu og vinna með einhverjar tölur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta karla - Neðri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 25 | -4 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 25 | -16 | 19 |