Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 16. desember 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd búið að tefla fram uppöldum leikmanni 4000 leiki í röð
Það er margt hægt að segja um slakt gengi Manchester United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær en norski stjórinn verður seint sakaður um að gefa ungum leikmönnum ekki tækifæri.

Það er ástæðan fyrir því að margir stuðningsmenn Rauðu djöflanna hafa trú á Solskjær. Það er partur af hefð félagsins að tefla fram uppöldum leikmönnum, þessi hefð náði sögulegu hámarki þegar '92 árgangurinn sprakk út undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Manchester United gerði jafntefli við Everton um helgina og blossaði upp skemmtileg staðreynd að leikslokum: Þetta var leikur númer 4000 í röð þar sem Man Utd tefldi fram uppöldum leikmanni. Rauðu djöflarnir hafa verið með minnst einn uppaldann inná vellinum í hverjum einasta leik síðan 1937.

Þetta er ekki eina áhugaverða tölfræði Man Utd sem leit dagsins ljós eftir jafnteflið. Rauðu djöflarnir eru í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig.

Af þessum 25 stigum hafa 12 komið gegn þeim 14 liðum sem eru núna stödd fyrir neðan Man Utd á stöðutöflunni. Hin 13 stigin hafa öll komið gegn þeim 5 liðum sem eru fyrir ofan Rauðu djöflana.

Man Utd er nefnilega búið að leggja Manchester City, Tottenham, Chelsea og Leicester að velli á tímabilinu og gera jafntefli við Liverpool.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner