Fotbolti.net
17.01.20 - 19:40
Elvar Geir Magnússon

Bruce fagnar því að endurheimta Saint-Maximin

Saint-Maximin snýr aftur.

Saint-Maximin snýr aftur.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce, stjóri Newcastle, fagnar endurkomu franska vængmannsins Allan Saint-Maximin sem hefur verið frá í mánuð vegna meiðsla.

„Hann er með mikinn hraða og kraft. Hann er með hæfileika til að komast framhjá mönnum," segir Bruce.

„Hann er leikmaður sem getur breytt leiknum fyrir þig og hann hefur sýnt það oft. Hans hefur verið saknað og það er jákvætt að hann sé mættur aftur."

Newcastle mætir Chelsea í síðdegisleiknum á morgun.

Javier Manquillo, Jack Colback, Ki,Sung-Yeng, Dwight Gayle, Paul Dummett, DeAndre Yedlin og Yoshinori Muto eru á meiðslalista Newcastle. Andy Carroll er tæpur en Fabian Schar er klár í slaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.