17.01.21 - 15:59
Ívan Guðjón Baldursson
England: Tottenham hafði betur gegn Sheffield

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield Utd 1 - 3 Tottenham
0-1 Serge Aurier ('5)
0-2 Harry Kane ('40)
1-2 David McGoldrick ('59)
1-3 Tanguy Ndombele ('62)
0-1 Serge Aurier ('5)
0-2 Harry Kane ('40)
1-2 David McGoldrick ('59)
1-3 Tanguy Ndombele ('62)
Botnlið Sheffield United tók á móti Tottenham og lenti undir strax á fimmtu mínútu þegar Serge Aurier skallaði fyrirgjöf Son Heung-min í netið.
Liðin skiptust á að sækja í kaflaskiptum leik og var gæðamunur liðanna augljós þegar komið var að síðasta vallarþriðjunginn. Leikmenn Sheffield komust nokkrum sinnum í ákjósanlegar stöður en tóku rangar ákvarðanir.
Harry Kane tvöfaldaði forystu Tottenham fyrir leikhlé og minnkaði David McGoldrick muninn fyrir heimamenn í síðari hálfleik með skalla eftir fyrirgjöf frá John Fleck.
Það liðu þó aðeins þrjár mínútur þar til gestirnir tvöfölduðu forystuna aftur, í þetta sinn skoraði Tanguy Ndombele stórglæsilegt mark úr ótrúlega erfiðu færi með tvo varnarmenn í sér.
Síðasti hálftími leiksins var þægilegur fyrir Tottenham sem vann sinn fyrsta útivallarsigur gegn Sheffield síðan 1975. Lærisveinar Jose Mourinho eru í fjórða sæti eftir sigurinn, þremur stigum eftir toppliði Man Utd sem á leik til góða.
Sheffield er áfram á botninum með fimm stig eftir nítján umferðir.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |