Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. janúar 2021 18:41
Ívan Guðjón Baldursson
Maguire: Hefðum unnið á öðrum degi
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, mætti í viðtal eftir markalaust jafntefli gegn Liverpool í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Liverpool stjórnaði fyrri hálfleik en sá seinni var jafnari þar sem bæði lið gerðu sig hættuleg. Paul Pogba átti bestu marktilraun leiksins en Allison Becker varði meistaralega og bjargaði stigi fyrir sína menn.

„Þeir byrjuðu betur en í síðari hálfleik vorum við betri. Við sköpuðum betri færi og hefðum unnið þennan leik á öðrum degi. Þetta var frekar jafn leikur þar sem tvö góð lið mættust. Okkur tókst að opna þá upp og við sköpuðum tvö frábær færi sem kölluðu á tvær stórkostlegar markvörslur," sagði Maguire.

„Það er mikið talað um að Liverpool vanti miðverði en þeir hafa verið mjög góðir varnarlega eftir að þeir misstu þessa menn í meiðsli. Þeir eru með breiðan hóp og mikið af möguleikum.

„Við vildum koma hingað til að sækja þrjú stig og erum svolítið svekktir miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Þetta er mjög erfiður útivöllur."

Athugasemdir
banner
banner
banner