Fotbolti.net
17.03.23 - 19:11
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Nottingham Forest og Newcastle: Mættur aftur eftir erfið meiðsli

Moussa Niakhate byrjar hjá Forest

Moussa Niakhate byrjar hjá Forest

Canon

Mynd: Getty Images

Franski varnarmaðurinn Moussa Niakhate er mættur aftur í lið Nottingham Forest eftir að hafa verið frá síðan í ágúst en Forest mætir Newcastle United í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 20:00 í kvöld.
Alls eru fjórar breytingar á liði Forest. Brennan Johnson er klár í slaginn en hann var tæpur fyrir leikinn. Andre Ayew, Emmanuel Dennis og Ryan Yates koma allir inn.

Niakhate, sem kom frá Mainz síðasta sumar, spilaði fyrstu tvo deildarleikina áður en hann meiddist illa. Hann er hins vegar klár í að byrja í kvöld.

Lið Newcastle er óbreytt frá síðasta leik.

Forest: Navas, Aurier, Niakhite, Felipe, Lodi, Shelvey, Yates, Johnson, Gibbs-White, Ayew, Dennis

Newcastle: Pope, Trippier, Schar, Botman, Burn, Guimaraes, Longstaff, Willock, Murphy, Saint-Maximin, Isak

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.