Granit Xhaka mun glaður spila áfram í vinstri bakverði ef Arsenal heldur áfram að vinna með hann í vörninni.
Xhaka er miðjumaður og hefur leikið þar nánast allan sinn feril en spilaði í bakverði í 4-0 sigri á Sparta Prag í Evrópudeildinni á fimmtudag.
Arsenal tryggði sér þar sæti í undanúrslitum keppninnar og mun liðið spila við Villarreal í næstu umferð.
„Ef við vinnum Evrópudeildina svona þá er mér alveg sama í hvaða stöðu ég spila," sagði Xhaka.
„Ef ég þarf að hjálpa liðinu þarna þá geri ég það. Ég er sá sem gerir allt fyrir liðið. Auðvitað vita allir að þetta er ekki mín venjulega staða en liðið hjálpar mér bæði til baka og fram á við."
„Ég er svo ánægður með að hafa hjálpað liðinu í þessari stöðu. Ég reyni mitt besta og frammistaðan var góð í síðustu tveimur leikjum."
Athugasemdir