City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   fim 17. apríl 2025 18:38
Sverrir Örn Einarsson
Gylfi: Þeir áttu þetta bara skilið
Gylfi í leik gegn ÍBV á dögunum
Gylfi í leik gegn ÍBV á dögunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Gríðarlega svekkjandi en þeir áttu þetta bara skilið held ég svona heilt yfir. Meiri barátta í þeim og tókust betur á við aðstæðurnar en við. Þeir voru erfiðir í skyndisóknum og bara áttu þetta skilið.“
Sagði Gylfi Sigurðsson leikmaður Víkinga um úrslitin er Víkingar féllu úr leik í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins eftir 3-0 tap gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 3 -  0 Víkingur R.

Víkingar voru langt frá því að vera líkir sjálfum sér í leik dagsins og aðspurður hvað betur hefði mátt fara svaraði Gylfi.

„Við áttum að gera betur þegar þeir voru að sækja hratt á okkur. og hefðum getað gert betur í að skapa okkur færi öðruvísi en að reyna að spila okkur í gegnum þá sem aðstæður kannski leyfðu ekki.
Við hefðum átt að dæla boltanum meira inn í boxið og spila upp á stóru framherjanna okkar “


Víkingar mættu ÍBV í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á dögunum og höfðu þar 2-0 sigur. Um það hver munurinn á leikjunum tveimur væri sagði Gylfi.

„Við gátum spilað boltanum hratt á gervigrasinu og aðstæður voru betri þá. Það var meira líf í okkur í deildarleiknum en þetta voru tveir ólíkir leikir.“

Allt viðtalið við Gylfa má sjá í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner