HM: Kongó náði í verðskuldað stig gegn Portúgal

Cristiano Ronaldo átti erfitt uppdráttar

Mynd: EPA

Yoane Wissa skoraði sögulegt mark

Portúgal 1-1 Kongó
1-0 Joao Neves ('6 )
1-1 Yoane Wissa ('45 )
1-0 Joao Neves ('6 )
1-1 Yoane Wissa ('45 )
Portúgal og Kongó mættust í fyrsta leik K-riðils á HM í kvöld. Cristiano Ronaldo og félagar ætla sér stóra hluti.
Ronaldo var að sjálfsögðu í byrjunarliðinu og vonaðist til að sýna sig eins og stórstjörnur á borð við Kylian Mbappe, Erling Haaland og Lionel Messi gerðu í gær.
Portúgal komst yfir snemma leiks þegar Joao Neves skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Pedro Neto.
Portúgal var mun meira með boltann en skapaði sér lítið sem ekkert í fyrri hálfleik. Leikmenn Kongó biðu rólegir eftir góðum tækifærum á skyndisóknum og þeim tókst að skapa fína hættu þar.
Kongó náði að jafna metin í blálok fyrri hálfleiks þegar Arthur Masuaku átti fyrirgjöf á kollinn á Yoane Wissa sem skoraði. Þetta var sögulegt mark þar sem þetta er fyrsta mark þjóðarinnar á sínu fyrsta móti.
Joao Cancelo skoraði með laglegri bakfallsspyrnu eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en hann var fyrir innan og rangstaða dæmd. Ronaldo fékk tækifæri til að koma Portúgal yfir þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en skotið framhjá.
Nær komust þeir ekki og jafntefli var niðurstaðan. Gríðarleg vonbrigði fyrir portúgalska liðið en stórkostleg úrslit fyrir Kongó.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!