Fotbolti.net
17.07.26 - 13:28
Elvar Geir Magnússon

Aron Einar kynntur hjá Þór og Gyrðir kemur á láni frá KR (Staðfest)

Aron Einar Gunnarsson.

Aron Einar Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur samið við Þór og mun leika með uppeldisfélaginu út keppnistímabilið. Akureyri.net staðfestir þetta en engin tilkynning er birt á miðlum Þórs þegar þetta er skrifað.

Þá hafa Þórsarar fengið Gyrði Hrafn Guðbrandsson að láni frá KR til haustsins. Þór er í erfiðum málum í Bestu deildinni, í neðsta sæti með aðeins átta stig. Liðið hefur ekki fagnað sigri síðan í þriðju umferð.
Aron Einar, sem er 37 ára, hefur aldrei leikið í efstu deild hér heima. Hann lék fyrst með meistaraflokki Þórs fyrir 20 árum, sumarið 2006, þá nýorðinn 17 ára; tók þátt í sex leikjum í næst efstu deild Íslandsmótsins og þremur í bikarkeppninni áður en leiðin lá utan í atvinnumennsku. Hann var svo með Þór í sex leikjum í næst efstu deild sumarið 2024.

Gyrðir Hrafn er 27 ára og fjölhæfur leikmaður. Hann mun hafa leikið í öllum stöðum á vellinum nema í marki í efstu deild! Hann lék með KR í yngri flokkunum en var síðan á mála hjá Leikni, þar sem hann lék undir stjórn Sigurðar Heiðars Höskuldssonar, núverandi þjálfara Þórs, m.a. tvö ár í efstu deild. Gyrðir lék síðan með FH 2023 og 2024, en snéri heim í KR fyrir sumarið 2025. Hann hefur tekið þátt í sex leikjum með KR í Bestu deildinni í sumar.

Þórsarar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta leik eftir komu tvímenninganna því topplið Víkings kemur í heimsókn á Þórsvöllinn á morgun.

Heimild: Akureyri.net

Gyrðir Hrafn kemur á láni frá KR.

Gyrðir Hrafn kemur á láni frá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.