Fotbolti.net
17.08.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Man City mætir Tottenham

Liverpool í opinni dagskrá

England í dag - Man City mætir Tottenham
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal og Burnley mætast í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið koma inn í leikinn með þrjú stig eftir góða sigra í fyrstu umferð.
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði í 3-0 sigri Burnley gegn Southampton á meðan Pierre-Emerick Aubameyang gerði sigurmark Arsenal gegn Newcastle.

Liverpool heimsækir Southampton í leik sem verður sýndur beint í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans.

Á sama tíma eiga Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton heimaleik gegn Watford. Þar munu Marco Silva og Richarlison mæta sínum fyrrum félögum.

Brighton á leik við West Ham, Norwich og Newcastle mætast og þá eiga nýliðar Aston Villa heimaleik gegn Bournemouth.

Frábærum laugardegi lýkur með stórleik, þar sem Manchester City mætir Tottenham. Þessi lið mættust í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í vor og úr varð ótrúleg skemmtun. Því er mikil eftirvænting fyrir þessa viðureign.

Leikir dagsins:
11:30 Arsenal - Burnley (Síminn Sport)
14:00 Brighton - West Ham
14:00 Everton - Watford
14:00 Norwich - Newcastle
14:00 Southampton - Liverpool (Sjónvarp Símans)
14:00 Aston Villa - Bournemouth
16:30 Man City - Tottenham (Síminn Sport)
England í dag - Man City mætir Tottenham
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.