17.08.26 - 11:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarni Mark til Svíþjóðar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Mark Antonsson er að ganga í raðir sænska félagsins Trelleborg frá Val. Trelleborgs Allehanda ræddi við hann og Vísir vakti athygli á.
Eftir Evrópuleikinn gegn Nordsjælland fór Bjarni til Svíþjóðar og æfði með sænska C-deildar liðinu. Tilgangurinn var að skoða aðstæður hjá félaginu. Félagaskiptin eru ekki gengin í gegn en framundan hjá Val er heimaleikur gegn KA í kvöld.

Bjarni er þrítugur og getur bæði spilað í varnarlínunni og miðsvæðis. Hann hefur komið við sögu í 14 deildarleikjum í ár, skorað eitt mark og lagt upp tvö. Hann skoraði í eina bikarleik Vals á tímabilinu og kom við sögu í öllum Evrópuleikjunum.
Hann gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2024 og samningur hans við Val rennur út í lok árs.
Bjarni, sem er uppalinn í KF og KA, þekkir vel til í Svíþjóð eftir að hafa spilað með Kristianstad og Brage.
Trelleborg er í efsta sæti Ettan Norra og með áframhaldandi velgengni verður liðið í næstefstu deild á næsta tímabili. Andreas Granqvist, fyrrum landsliðsfyrirliði Svía, er þjálfari Trelleborg.