Fotbolti.net
17.09.26 - 07:35
Elvar Geir Magnússon

Liverpool gæti reynt við Camara í janúar

Camara í senegalska landsliðsbúningnum.

Camara í senegalska landsliðsbúningnum.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Liverpool gæti bætt við sig miðjumanni í janúar, Luton hefur gert misheppnaðar tilraunir til að fá ungstirni Arsenal lánað og Luke Shaw gæti yfirgefið Manchester United á næsta ári. Þetta og fleira í slúðrinu.
Liverpool íhugar að reyna að fá senegalska miðjumanninn Lamine Camara (22) frá Mónakó í janúar. Camara var nálægt því að fara til Chelsea í lok sumargluggans. (Football Insider)

Luton Town í C-deildinni hefur ítrekað reynt að fá Max Dowman (16) lánaðan frá Arsenal sem hefur hafnað öllum lánstilboðum. (TalkSport)

Luke Shaw (31) gæti yfirgefið Manchester United næsta sumar, en engin merki eru um samningaviðræður milli hans og félagsins að svo stöddu. (Mail)

Þýski miðjumaðurinn Noah Ajayi (17) er nálægt því að undirrita sinn fyrsta atvinnumannasamning við Manchester United. (Sky Sports)

Arsenal, Brighton og Aston Villa fylgjast öll með austurríska miðjumanninum Luca Weinhandl (17) sem gæti verið fáanlegur frá Sturm Graz fyrir um 17 milljónir punda. (CaughtOffside)

Tottenham er nýjasta félagið sem orðað er við argentínska sóknarmanninn Mauro Icardi (33) sem er án félags eftir að hafa yfirgefið Galatasaray í júlí. (Calciomercato)

Arsenal fylgist með bata Rodrygo (25), kantmanns Real Madrid, eftir meiðsli, en félagið sýndi þessum brasilíska leikmanni áhuga fyrr í sumar. (Teamtalk)

Enski sóknarmaðurinn Vincent Joseph (16) hefur staðfest að hann yfirgefi Liverpool og búist er við að hann gangi til liðs við Arsenal. (Standard)

Leeds United mun ekki flýta sér að að taka ákvörðun um að kaupa sóknarmanninn Jean-Matteo Bahoya (21) sem er á láni frá Eintracht Frankfurt. Leeds hefur möguleika um að kaupa hann fyrir 19,7 milljónir punda. (Football Insider)

Anthony Martial (30), fyrrum sóknarmaður Manchester United og franska landsliðsins, er á leiðinni til spænska liðsins Malaga á frjálsri sölu. (Footmercato)
Arsenal hefur hafnað lánstilboðum Luton í Dowman.

Arsenal hefur hafnað lánstilboðum Luton í Dowman.

Canon

Mynd: EPA

Icardi til Tottenham?

Icardi til Tottenham?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.