17.11.19 - 15:19
Brynjar Ingi Erluson
Englendingar fengu frábærar móttökur í Kósóvó

Kósóvóbúar hafa sýnt ótrúlega gestrisni

Mynd: Getty Images

Kósóvóbúar hafa sýnt ótrúlega gestrisni

Mynd: Getty Images
Enski landsliðshópurinn og stuðningsmenn liðsins hafa fengið höfðingjalegar móttökur í Kósóvó en liðin eigast við í lokaleiknum í undankeppni Evrópumótsins í kvöld.
Enska landsliðið er búið að vinna riðilinn sinn en Kósóvó er á leið í umspil um sæti.
Völlur Kósóvó tekur 13 þúsund manns en þegar miðar fóru í sölu á landsleikinn hrundi síðan, svo mikið var álagið.
Stuðningsmenn enska landsliðsins hafa fengið frábærar móttökur sem og leikmenn liðsins. Á hverju horni má finna fána sem stendur á „Velkomin/n - Virðing".
Andrúmsloftið er notalegt þarna og allir jákvæðir. Krakkarnir á svæðinu leika sér í fótbolta með stuðningsmönnum Englands en breska ríkið átti stóran þátt í að frelsa Kósóvó eftir Kósóvó-stríðið.
Ekki nóg með það heldur ákváð landslið Kósóvó að leyfa enska liðinu að gista á liðshótelinu þeirra og fóru heimamenn því á annað hótel í landinu.
Hægt er að sjá myndir frá Kósóvó hér fyrir neðan.