Fotbolti.net
18.01.21 - 09:19
Magnús Már Einarsson

Klopp: Mikilvægast að enda í topp fjórum

Jurgen Klopp

Jurgen Klopp

Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Að mínu mati er ekki mikilvægt í hvaða sæti við erum í augnablikinu. Það er mikilvægt að við erum með stig og erum í kringum þennan hóp (topp fjögur),"</I> sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir markalaust jafntefli gegn Manchester United í gær.

Liverpool er í 4. sæti deildarinnar eftir leikinn en liðið hefur ekki unnið í síðustu fjórum leikjum. Klopp segist ekki hugsa um að verja titilinn heldur sé mikilvægast að ná Meistaradeildarsæti.
„Við þurfum stig til þess. Við erum í miðjunni af mörgum liðum sem eru að berjast um þetta toppsæti og við þurfum að gera það."

„Þetta er samt ekki þannig að ef við verðum ekki meistarar þá sé ekki gaman lengur. Við þurfum að berjast í öllum leikjum og við sáum það aftur í kvöld."

„Mikilvægast er að ná sæti í Meistaradeildinni og ég veit hversu erfitt það er. Á þessu tímabili verður erfitt kapphlaup um að komast inn í topp fjóra."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.