Fotbolti.net
18.01.22 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Subway

England í dag - Nær Brighton að stríða Chelsea aftur?

England í dag - Nær Brighton að stríða Chelsea aftur?
Canon

Mynd: EPA

Það er svipað uppá teningnum í dag eins og aðra daga á Englandi. Færri leikir en upphaflega var gert ráð fyrir.
Aðeins einn leikur fer fram í kvöld þar sem Brighton fær Chelsea í heimsókn.

Chelsea tapaði dýrmætum þremur stigum gegn Man City í síðustu umferð en liðið er þar með þrettán stigum frá toppi deildarinnar. Brighton hefur verið í vandræðum en liðið hefur aðeins unnið þrjá af síðustu 15 leikjum sínum.

Það er stutt síðan liðin mættust síðast en leikurinn á Stamford Bridge endaði með 1-1 jafntefli þann 29. desember. Danny Welbeck jafnaði þá metin fyrir Brighton í uppbótartíma.

Leikur Burnley og Watford átti að fara fram í dag en Burnley bað um að leiknum yrði frestað og þeir fengu það í gegn, aðeins 10 leikmenn aðalliðsins voru mættir á æfingu í gær.

ENGLAND: Premier League
20:00 Brighton - Chelsea

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.