Fotbolti.net
18.01.22 - 23:08
Brynjar Ingi Erluson

Ítalski bikarinn: Sampdoria auðveld bráð fyrir Juventus

Paulo Dybala skoraði fyrir Juventus

Paulo Dybala skoraði fyrir Juventus

Canon

Mynd: EPA

<b>Juventus 4 - 1 Sampdoria</b>
1-0 Juan Cuadrado ('25 )
2-0 Daniele Rugani ('52 )
2-1 Andrea Conti ('63 )
3-1 Paulo Dybala ('67 )
4-1 Alvaro Morata ('77 , víti)
Juventus tryggði sig í 8-liða úrslit ítalska bikarsins með 4-1 sigri á Sampdoria á Allianz-leikvanginum í kvöld.

Juan Cuadrado kom Juventus yfir með marki úr aukaspyrnu á 25. mínútu leiksins og var það eina markið sem skildi liðin að í hálfleik.

Ítalski varnarmaðurinn Daniele Rugani stangaði boltanum í netið eftir fyrirgjöf Arthur á 52. mínútu áður en Andrea Conti minnkaði muninn á 63. mínútu.

Argentínumaðurinn, Paulo Dybala, gerði þriðja mark Juventus fjórum mínútum síðar áður en Alvaro Morata rak síðasta naglann í kistu Sampdoria með marki úr vítaspyrnu þrettán mínútum fyrir leikslok.

Juventus mætir Sassuolo eða Cagliari í 8-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.