Fotbolti.net
18.02.25 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chivu að taka við Parma

Chivu að taka við Parma
Canon

Mynd: EPA

Cristian Chivu er að taka við sem stjóri Parma eftir að Fabio Pecchia var rekinn í gær.

Liðið er án sigurs í síðustu sjö leikjum og hefur því komið í fallsæti sem hefur orðið til þess að félagið ákvað að fara í þessar breytingar. Liðið á mikilvæga leiki framundan í baráttunni m.a. gegn botnliði Monza þann 16. mars
Chivu er fyrrum leikmaður Inter en þessi 44 ára gamli Rúmeni lagði skóna á hilluna árið 2014. Árið 2018 tók hann við sem þjálfari U14 liðs Inter og hefur unnið sig upp síðan. Hann hefur þjálfað U19 liðið undanfarin þrjú ár.

Þá var Igor Tudor sagður vera undir smásjá Parma. Tudor tók við af Mauricio Sarri hjá Lazio síðasta sumar en hætti eftir aðeins þrjá mánuði eftir ósætti við stjórnina.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Frosinone9+817
7Napoli9+614
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta9-111
13Genoa9-510
14Lecce9-99
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Fiorentina9-105
19Parma9-105
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.