Ævintýri Wrexham ætlar engan endi að taka. Liðið hefur flogið upp um deildirnar á síðustu árum og það er ekki útilokað að Wrexham verði í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Allt breyttist eftir að Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney keyptu félagið.
Allt breyttist eftir að Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney keyptu félagið.
Þeir hafa mikla ástríðu fyrir Wrexham og hafa lagt fram mikla fjármuni til að taka skref upp á við.
Ásamt því að vera að gera góða hluti í Championship-deildinni, þá er Wrexham komið í 16-liða úrslit enska bikarsins. Þar fær liðið heimaleik gegn Chelsea en dregið var í byrjun vikunnar.
Ryan Reynolds, eigandi Wrexham, fylgdist með drættinum ásamt stórleikaranum Hugh Jackman. Reynolds birti skemmtilegt myndband af því sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.
Chelsea at the Racecourse! Holy crap ?????????? pic.twitter.com/aC8EnLCZEl
— Ryan Reynolds (@VancityReynolds) February 16, 2026
Athugasemdir


