Það voru fimm leikir á dagskrá í Allsvenskan deildinni í Svíþjóð í dag.
Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson voru í byrjunarliði Norrköping sem mættir Djurgarden á útivelli.
Djurgarden fór með 1-0 sigur af hólmi í leiknum en Ísak lék fyrstu 75 mínúturnar á meðan Ari spilaði allan leikinn. Finnur Tómas Pálmason sat allan tímann á bekknum hjá gestunum.
Valgeir Lunddal Friðriksson byrjaði þá í liði Häcken og fór af velli fyrir Óskar Sverrirsson þegar rúmar fimmtán mínútur voru eftir þegar Hacken tapaði gegn Malmö en þessir leikir voru í annarri umferð deildarinnar.
Kalmar vann Degerfors, Östersund valtaði yfir Örebro 5-0 og Sirius vann Halmstad 1-0 í öðrum leikjum dagsins í deildinni. Aron Bjarnason lék ekki með Sirius en hann glímir við ökklameiðsli.
Athugasemdir