Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 18. apríl 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Í skýjunum með að hreppa Gabríel Snæ - „Undirstrikar að við erum aðlaðandi félag fyrir efnilega leikmenn“
Gabríel Snær gengur formlega til liðs við Elfsborg í sumar
Gabríel Snær gengur formlega til liðs við Elfsborg í sumar
Mynd: Aðsend
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænska félagið Elfsborg er í skýjunum með að hafa keypt Gabríel Snæ Gunnarsson frá ÍA, en hann gerði þriggja ára samning við félagið á fimmtudag.

Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum Gabríels í janúar og voru þau formlega tilkynnt fyrir helgi, en hann mun ekki ganga í raðir félagsins fyrr en 1. júlí.

Gabríel er 17 ára gamall sóknarmaður sem á þrettán deildarleiki að baki með ÍA. Hann átti flott undirbúningstímabil með Skagamönnum og kom inn af bekknum í fyrsta leiknum í Bestu deildinni á þessari leiktíð.

Björn Hamberg, þjálfari Elfsborg, segir félagaskiptin undirstrika það að Elfsborg er aðlaðandi félag fyrir unga og hæfileikaríka leikmenn.

„Við erum hæstánægðir með að fá Gabríel til Elfsborg. Hann er leikmaður, sem hefur þrátt fyrir ungan aldur, þegar fengið smjörþefinn af því að spila í meistaraflokki þar sem hann hefur staðið sig með prýði. Þessi félagaskipti undirstrika það að við erum heillandi félag fyrir unga og hæfileikaríka leikmenn. Velkominn Gabríel!“ sagði Hamberg um Gabríel.

Stefan Andreasson, framkvæmdastjóri Elfsborg, tók undir með Hamberg og segir félagið hafa verið að landa einum allra efnilegasta sóknarmanni Íslands.

„Gabríel er leikmaður sem við höfum fylgst með í einhvern tíma og þá heimsótti hann okkur nú síðast í desember. Hann er einn efnilegasti sóknarmaður Íslands og verið fastamaður í yngri landsliðm Íslands og þegar spilað fjölmarga leiki í efstu deild. Eftir að hafa heillað okkur sem leikmaður og persóna þá gleður okkur að kynna hann sem nýjan leikmann Elfsborg,“ sagði Andreasson.

Gabríel er sonur fyrrum landsliðsmannsins Gunnars Heiðars Þorvaldssonar sem lék meðal annars með sænsku liðunum BK Häcken, Halmstad og Norrköping á frábærum atvinnumannaferli sínum.
Slapp
banner
banner