Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. maí 2019 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hamar fékk til sín tvo leikmenn fyrir lok gluggans (Staðfest)
Liam Killa aftur í Hamar
Liam Killa aftur í Hamar
Mynd: Hamar
Hamar krækti í tvo leikmenn áður en félagsskiptaglugginn lokaði á miðvikudagskvöldið.

Brynjólfur Þór Eyþórsson kemur á láni frá Selfoss. Hann er 17 ára framherji. Brynjólfur er uppalinn Hvergerðingur og lék með Hamri í yngri flokkum. Hann hefur verið í meistaraflokkshóp Selfoss síðastliðin tvö ár og spilaði tvo leiki í Inkasso deildinni með Selfossi í fyrra.

Liam Killa kemur frá Ægi. Liam er 30 ára varnar- og miðjumaður. Liam spilaði með Hamri árin 2016 og 2017. Hann var þjálfari liðsins seinna árið. Liam hefur spilað 25 leiki fyrir Hamar í deild og bikar og skorað fjögur mörk fyrir félagið.

Hamar leikur í C-riðli 4. deildar karla og hefur þrjú stig eftir fyrstu umferð. Liðið mætir Fenri þriðjudaginn 21. maí í 2. umferð.
Athugasemdir
banner
banner