Fotbolti.net
18.08.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Chelsea mætir Leicester

England í dag - Chelsea mætir Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Það eru tveir leikir úr enska boltanum á dagskrá í dag og verða þeir báðir sýndir beint á sportrás Símans.
Nýliðar Sheffield United taka á móti Crystal Palace í fyrri leik dagsins, áður en Chelsea og Leicester eigast við í spennandi viðureign.

Bæði lið eru með eitt stig eftir jafntefli í fyrstu umferð og líta eflaust á þennan leik sem kjörið tækifæri til að næla sér í fyrsta sigur tímabilsins.

Palace verður án miðvarðanna Mamadou Sakho og James Tomkins vegna meiðsla.

Viðureign Chelsea og Leicester lofar góðu enda hafa bæði félög unnið úrvalsdeildina á þessum áratugi.

Chelsea byrjaði tímabilið á 4-0 skelli gegn Manchester United á meðan Leicester gerði jafntefli við Wolves.

Chelsea er án Ruben Loftus-Cheek, Reece James og Marco van Ginkel vegna meiðsla. Þá er Callum Hudson-Odoi tæpur. Leicester er ekki að glíma við meiðslavandræði.

Leikir dagsins:
13:00 Sheffield Utd - Crystal Palace (Síminn Sport)
15:30 Chelsea - Leicester (Síminn Sport)
England í dag - Chelsea mætir Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.