Fotbolti.net
18.09.21 - 12:30
Aksentije Milisic

Zlatan missir líklega af leiknum gegn Juventus

Zlatan missir líklega af leiknum gegn Juventus
Canon

Mynd: EPA

Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, er að glíma við smávægileg meiðsli í hásin.
Þessi stóri og stæðilegi leikmaður skoraði í síðasta deildarleik AC Milan gegn Lazio en félagið hefur farið mjög vel af stað í Serie A á þessu tímabili og unnið fyrstu þrjá leiki sína.

Hinn 39 ára gamli Ibrahimovic meiddist hins vegar á hásin í þeim leik og hann missti því af leiknum gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í miðri viku. Liverpool vann leikinn með þremur mörkum gegn tveimur.

AC Milan á stórleik við Juventus annað kvöld og mun Zlatan að öllum líkindum missa af þeim leik. Milan vill ekki spila leikmanninum of snemma og mun því ekki taka möguleikann á því að nota hann á morgun.

Leikurinn hefst klukkan 18:45 á San Siro leikvangnum í Mílanó borg.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Lazio7+1019
3Roma7+1317
4Milan7+715
5Como7+514
6Frosinone7+413
7Cagliari7-113
8Juventus7+111
9Napoli7+310
10Torino7+110
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Sassuolo7-28
14Monza7-27
15Bologna7-45
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.