Fotbolti.net
18.09.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona sendi njósnara til Svíþjóðar

Bo Hegland

Bo Hegland

Canon

Mynd: Djurgården

Spánarmeistarar Barcelona fylgjast náið með norska miðjumanninum Bo Hegland sem spilar með Djurgården í Svíþjóð Expressen greinir frá.
Hegland er 22 ára gamall og hefur farið á kostum með Djurgården á leiktíðinni.

Hann hefur skorað tíu mörk og lagt upp átján í öllum keppnum til þessa og frammistaðan hefur vakið athygli víða.

Leikmenn á þessum aldri taka oft næsta skref í sterkari deild án þess að fara beint til stærstu félaga Evrópu, til dæmis til Hollands, Ítalíu eða Þýskalands. Samkvæmt Expressen gæti Hegland hins vegar tekið mun stærra stökk.

Barcelona hefur sýnt honum áhuga og gæti óvænt lagt fram tilboð í hann á næsta ári. Félagið hefur þegar sent njósnara til að fylgjast með honum í leikjum.

Hegland er sóknarsinnaður miðjumaður og á að baki tvo leiki og eitt mark fyrir U21 árs landslið Noregs.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.