Fotbolti.net
18.10.19 - 09:28
Elvar Geir Magnússon

Meiðsli De Gea ekki eins slæm og óttast var

David de Gea.

David de Gea.

Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að það sé ansi ólíklegt að David de Gea verði í marki United gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

<i>„Ég býst ekki við því að hann geti spilað en meiðslin eru ekki eins slæm og óttast var. Ég held að hann verði ekki lengi frá,"</i> segir Solskjær.

De Gea fór meiddur af velli í leik með spænska landsliðinu.

<i>„Ég horfði á leikinn og hélt að hann yrði frá þar til í næsta landsleikjahléi en þetta er ekki eins slæmt og við óttuðumst."</i>
Solskjær segir að nokkrir leikmenn séu tæpir fyrir leikinn á sunnudag en það séu tvær æfingar eftir fram að leiknum og það þurfi að sjá stöðuna á mönnum þar.

Manchester United er í tólfta sæti og flestir búast við því að liðið tapi á heimavelli gegn toppliði Liverpool á sunnudag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.