Fotbolti.net
18.10.20 - 20:14
Ívan Guðjón Baldursson

England: Aston Villa vann í Leicester - Áfram með fullt hús

England: Aston Villa vann í Leicester - Áfram með fullt hús
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Leicester City 0 - 1 Aston Villa</b>
0-1 Ross Barkley ('91)
Leicester City tók á móti Aston Villa í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og úr var ansi bragðdauf viðureign.

Staðan var markalaus stærstan hluta leiksins og lítið um hættuleg færi. Lítið marktækt gerðist í leiknum þar til Ross Barkley gerði sigurmark Aston Villa í uppbótartíma.

Hann fékk þá sendingu frá John McGinn langt fyrir utan teig, tók nokkur skref og lét vaða með frábæru skoti sem Kasper Schmeichel réði ekki við.

Þetta reyndist sigurmarkið og er Aston Villa í öðru sæti með tólf stig eftir fjórar umferðir, einu stigi eftir toppliði Everton og með leik til góða.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.